Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2012 verða eingöngu birtir rafrænt og ekki sendir út með landpósti eins og venja hefur verið. Frá og með 24. janúar 2012 geta fasteignaeigendur nálgast álagningarseðil sinn á upplýsinga- og þjónustuveitunni Ísland.is (vefslóð er http://www.island.is). Auðkenning á Ísland.is er með veflykli ríkisskattstjóra eða rafrænum skilríkjum.
Þeir sem óska eftir að fá álagningarseðilinn sendan í pósti er bent á að hafa samband við skrifstofu Fjarðabyggðar í síma 470-9000 eða að senda póst á netfangið kristinn.thorsteinsson@fjardabyggd.is.
Gjalddagar fasteignagjalda eru átta. Fyrsti gjalddagi er 1. febrúar 2012 en eftir það fyrsti dagur hvers mánaðar frá mars til september. Eindagi fasteignagjalda er síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.
Vakin er athygli á því að í gegnum www.island.is verður hægt að komast inn á Bæjardyr Fjarðabyggðar, sem er þjónustuvefur þar sem hægt er að skoða reikninga, greiðslur og viðskiptastöðu við sveitarfélagið.
Rafræn birting álagningarseðla er bæði umhverfisvæn og hagkvæm leið til að koma upplýsingum til skila.