Leikskólinn Kæribær á Fáskrúðsfirði auglýsir eftir leikskólakennara til afleysinga í eitt ár. Ef ekki næst að ráða leikskólakennara verður ráðinn starfsmaður með sambærilega menntun eða reynslu af uppeldisstarfi. Um er að ræða 100% starf á yngstu deild leikskólans, þar eru börn á aldrinum eins til tveggja ára.
Við viljum gefa hverju barni tækifæri til að blómstra á sínum eigin forsendum og byggja upp einstaklinga með jákvæða og sterka sjálfsmynd. Okkar meginstefna er byggir á 12 alheimsgildum og eru jákvæð og kærleiksrík samskipti eru í hávegum höfð.
Áhersla á fjölbreytt verkefnaval, vandaðan efnivið, næringarríkt fæði, jákvæðni og gleði í starfi. Eitt af því sem við teljum mikilvægt er að kenna börnum græn gildi og virðingu fyrir umhverfi sínu. Markvisst er unnið að umhverfisvernd.
Umsóknarfrestur er til 25. mars n.k. Kjör eru skv. samningi launanefndar og viðkomandi stéttarfélags. Áhugasamir hafi sambandi við Hrafnhildi Unu Guðjónsdóttur í síma 475 9055