Til Baka

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður óskast

 

Auglýst er laust til umsóknar starf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns á slökkvistöðinni að Hrauni á Reyðarfirði.  Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu við sjúkraflutninga, slökkvistörf og reykköfun, björgun og neyðarflutninga.  Laun eru skv. kjarasamningi LN og LSS.

 

Umsækjendur þurfa að

  • Uppfylla skilyrði 8.gr. reglugerðar nr. 792/2001.
  • Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
  • Hafa aukin ökuréttindi til að stjórna: a) vörubifreið og b) leigubifreið.
  • Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun (stúdentspróf) og reynslu.
  • Vera reiðubúnir til að gangast m.a. undir styrkleikapróf -  hlaup og sund, aksturspróf, próf vegna lofthræðslu og innilokunarkenndar, læknisskoðun - hjóla- og áreynslupróf.

 

Umsóknum og fylgigögnum skal skila til slökkviliðsstjóra að Hrauni 2, 730 Reyðarfirði eigi síðar en 10. febrúar nk.  Fylgigögn eru  læknisvottorð, sakavottorð, prófskírteini og ljósrit af ökuskírteini.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Helgi Sigfússon slökkviliðsstjóri Fjarðabyggðar (mummi@fjardabyggd.is) í síma 470 9081 á skrifstofutíma.

 

-

Til Baka
| Meira