Til Baka

Fjárhagsáætlun Fjarðbyggðar 2008 var vísað til síðari umræðu á bæjarstjórnarfundi

Bæjarstjórn tók í gær til fyrri umræðu drög að fjárhagsáætlun fyrir sameinaða Fjarðabyggð og stofnanir. Áætlað er að tekjur Fjarðabyggðar og stofnana nemi 3.716,3 milljónir en gjöld 3.290,4 milljónir kr. Fjármagnsliðir eru áætlaðir 388,2 millj. kr. Þá er áætlað að um 796 milljónir kr. fari til framkvæmda. Bæjarstjórn samþykkti að vísa áætluninni til síðari umræðu sem verður 20. desember n.k.

Í forsendum er gert ráð fyrir að útsvarstekjur lækki nokkuð milli ára þar sem brátt lýkur byggingu álversins að Hrauni. Samtals eru útsvarstekjur áætlaðar 1,5 milljarðar kr. Þá eru tekjur vegna fasteignagjalda miðaðar við 10% hækkun fasteignamats og 5% aukningu eigna í sveitarfélaginu. Áætluð tekjuaukning fasteignagjalda er um 211 milljónir kr. og vegur þar þyngst fasteignaskattur sem Alcoa-Fjarðaál greiðir á árinu.

Hækkun rekstrargjalda stafar að mestu af áætlaðri almennri 3% hækkun launa á árinu 2008. Almennur rekstrarkostnaður eykst (vex) vegna stærri rekstrareininga og fjölgunar íbúa. Rekstrargjöld allrar samstæðunnar hækka um 157,4 milljónir króna, einkum af meiri launakostnaði að fjárhæð 33,1 milljónir, öðrum rekstrarkostnaði 106,6 milljónir og afskriftum að upphæð 17,6 milljónir kr.

Rekstrarniðurstaða er áætluð jákvæð, utan fjármagnsliða, sem nemur 80,5 milljjónum kr. Í A-hluta og 425,9 milljónum í samstæðu (A-og B-hluta). Að teknu tilliti til fjármagnsliða er rekstrartap í A-hluta 104,7 milljónir en rekstrarafgangur í A-og B-hluta 37,7 milljónir.

Í samstæðu (A-og B-hluta) er veltufé frá rekstri áætlað 411,2 milljónir. Fjárfestingar samstæðu eru áætlaðar um 796 milljónir kr. Nettó og afborganir langtímalána 431 milljónir króna. Um er að ræða fjárfestingar í Eignasjóði og Eignarhaldsfélaginu Hrauni upp á 259 milljónir,í Hafnarsjóði 436,7 milljónir o g í Veitustofnun 47,8 milljónir kr.

Nánari upplýsingar veitir Páll Björgvin Guðmundsson fjármálastjóri í síma 470-9000 og 470-9032.

Framsaga Helgu Jónsdóttur bæjarstjóra um fjárhagsáætlun 2008


Forsendur fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar 2008

Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2008 A-hluti

Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2008 A- og B-hluti

Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2008, rekstur

-

Til Baka
| Meira