Til Baka
Fjölmennur íbúafundur á Stöðvarfirði
Fjölmennur íbúafundur var haldinn á Brekkunni Stöðvarfirði miðvikudagskvöldið 25.ágúst. Um 100 manns voru á fundinum en þungt er í íbúum vegna fyrirhugaðra lokana útibúa Landsbankans og Íslandspósts á staðnum. Í kjölfar fundarins hefur bæjarstjórn Fjarðabyggðar farið fram á formlegar viðræður við Landsbankann – NBI hf. og Íslandspóst hf.
Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á fundinum. Ályktun um Landsbankann og Íslandspóst „Íbúafundur haldinn á Stöðvarfirði 25. ágúst 2010, fordæmir harðlega þá ákvörðun Landsbankans (NBI. hf) að loka útibúi sínu Stöðvarfirði. Með því lokast afgreiðsla Íslandspósts og þar með hrakar þjónustunni í þorpinu meira en ásættanlegt getur talist. Fundurinn skorar á yfirvöld að sjá til þess að fallið verðir frá þessari ákvörðun í nafni jöfnuðar og réttlætis. Fundurinn skorar jafnframt á bæjarstjórn Fjarðabyggðar að hefja formlegar samningaviðræður við Landsbankann og Íslandspóst um að starfsemi viðkomandi fyrirtækja á Stöðvarfirði haldi áfram eins og verið hefur. Kannað verði vandlega hvernig bæjarstjórnin geti lagt málinu lið svo tryggja megi þá niðurstöðu“
Ályktun um Þjóðveg eitt „Íbúafundur haldinn á Stöðvarfirði 25. ágúst 2010, hvetur samgönguyfirvöld til að endurskoða legu Þjóðvegar 1 um Breiðdalsheiði með það í huga að færa hann á veginn um firði og Fagradal sem nú bera númerin 96 og 92. Öll rök hníga að færslu Þjóðvegar 1 um Fagradal hvort sem horft er til öryggis- eða byggðarsjónarmiða. Ein af grunnstoðum þess að hægt sé að efla ferðamannaþjónustu á Stöðvarfirði er færsla þjóðvegarins“
-
Til Baka