Ávaxtamót UÍA í frjálsum íþróttum fór fram í samstarfi við Leikni, á Fáskrúðsfirði síðastliðinn sunnudag. Mótið var ætlað þátttakendum 10 ára og yngri og reyndu þar með sér á fjórða tug krakka frá Þristi, Val, Hetti, Neista, Austra og Leikni.
Framkvæmd mótsins gekk ljómandi vel enda lögðu margir vaskir foreldar hönd á plóginn. Einbeitnin skein úr augum keppenda sem spreyttu sig í spretthlaupi, langstökki án atrennu og boltakasti. Gulur og glaður banani í félagi við afar sprækan ananas slógust í hópinn undir lok keppninnar, stjórnuðu þeir félagar þrautaboðhlaupi en þar var æsispennandi keppni milli stráka og stelpna, sem lauk með naumum sigri stelpnanna. Í lok móts afhentu ávextirnir kátu öllum keppendum bakpoka í viðurkenningarskyni fyrir þátttökuna.
Úrslit og myndir af mótinu má finna á heimasíðu UÍA www.uia.is