Til Baka

Dagur leikskólans

7.2.2012

 
 
Leikskólarnir í Fjarðabyggð héldu upp á Dag leikskólans í gær með fjölbreyttum hætti.  Nemendur og starfsfólk fór í gönguferðir um bæina og heimsóttu fyrirtæki og leyfðu bæjarbúum að njóta listaverka barnanna sem voru hengd upp í fyrirtækjum og verslunum. Í Leikskólanum Lyngholti á  Reyðarfirði var eldri borgurum auk þess boðið í sólarkaffi.



Leikskólakrakkar og starfsmenn komu í heimsókn á bæjarskrifstofuna og ræddu við Pál bæjarstjóra og færðu honum listaverk að gjöf.  Krakkarnir sýndu okkur líka 3 poka af rusli sem þau týndu upp á leiðinni frá Lyngholti niður á bæjarskrifstofu.  Þau hvetja bæjarbúa til að ganga betur um og henda ekki ruslinu á göturnar.



Myndirnar eru frá heimsókn Lyngholts á bæjarskrifstofuna.


Til Baka
| Meira