Í síðustu viku voru kynntar niðurstöður úttektar á opinberum vefjum ríkis og sveitarfélaga sem var gerð á vegum innanríkisráðuneytisins. Vefur Akureyrarbæjar var kjörinn besti vefur sveitarfélaga og óskum við Akureyringum til hamingju með flottan vef og góðan árangur.
Vefur Fjarðabyggðar lenti hins vegar í 8. sæti með 69 stig af 100 en vefurinn fékk m.a. 100 stig fyrir nytsemi. Auk nytsemi var horft til innihalds, aðgengis og þjónustu.
Það er góð hvatning til okkar sem vinnum að vefnum að fá svona góða niðurstöðu og við stefnum að því bæta vefinn og komast hærra á listann á næsta ári.
Úttektir sem þessi hafa verið gerðar síðustu fjögur ár og nánari upplýsingar eru á http://www.ut.is/konnun2011/