Endurreisn sögufrægra húsa á Fáskrúðsfirði er nú komin á áætlun, eftir að samkomulag hefur náðst um fjármögnun verkefnisins. Minjavernd og Virðing hf. sendu í dag frá sér fréttatilkynningu vegna málsins.
„Virðing hf. hefur í samstarfi við fjárfesta lokið langtímafjármögnun vegna umfangsmesta verkefnis sem Minjavernd hefur ráðist í utan höfuðborgarsvæðisins. Verkefnið felst í endurbyggingu sögufrægra húsa á Fáskrúðsfirði, sem staðsett verða í þyrpingu við sjóinn. Verður Franski spítalinn frá 1903 þar í öndvegi, en húsið var að hruni komið enda verið í niðurníðslu í nær hálfa öld,“ segir í tilkynningunni.
„Minjavernd hf. hefur að meginmarkmiði að endurbyggja og varðveita gömul og sögufræg hús um allt land. Verkefnið á Fáskrúðsfirði er hið umfangsmesta, sem félagið hefur ráðist í til þessa, en ætlunin er að endurbyggja helstu húsin sem tengdust veru og þjónustu við franska fiskimenn á Fáskrúðsfirði.“
Fram kemur einnig að búið sé að taka niður hús spítalans á Hafnarnesi, en þar hefur það staðið frá árinu 1939. Húsið var flutt til Fáskrúðsfjarðar þar sem það verður endurbyggt frá grunni. Unnið hefur verið að því í vetur m.a. að hreinsa panel úr húsinu og undirbúa endurbygginguna að öðru leyti. „Spítalinn verður staðsettur fyrir neðan Læknishúsið og verður innangengt milli húsanna. Gert er ráð fyrir að gamla kapellan, sjúkraskýlið og líkhús spítalans, sem byggð voru á árunum frá 1896 til 1904, verði hluti húsaþyrpingarinnar auk þess sem ætlunin er að smíða bryggju fyrir neðan húsin,“ segir að auki í tilkynningunni frá því í dag.
Er með verkefninu ætlunin að styrkja ferðaþjónustuna þar eystra og stendur m.a. til að opna safn um sjósókn Frakka við Ísland. Hótel og önnur tengd starfsemi er einnig á teikniborðinu. Með þessu vilja aðstandendur verkefnisins gera þessari merkilegu sögu meiri skil en hingað til. Gert er ráð fyrir að reksturinn hefjist vorið 2014 og áætlaður framkvæmdakostnaður er 580 milljónir kr.
Frétt af www.mbl.is