Í gær fimmtudaginn 12. ágúst veittu afkomendur Guðjóns Antons Gíslasonar (Hákarla Guðjóns) fjárstyrk til minningarreits um fjarstadda látna ástvini að upphæð 240.000.- kr, Fjárstyrkurinn kemur til vegna minningarkvöldvöku sem haldin var í Randulffssjóhúsi sjómannadaginn 6. júní sl. til minningar um Guðjón sem lést síðastliðið haust. Kvöldinu var stýrt af Ellert Borgari Þorvaldssyni ásamt Randúlfunum. Tónlist, sögur og léttar veitingar voru einnig í boði.
Allir sem að kvöldvökunni stóðu gáfu sína vinnu og einnig fékkst styrkur að upphæð 80.000 kr frá Menningarnefnd Fjarðabyggðar.
Fjölskyldan þakkar öllum þeim sem hjálpuðu til við að gera kvöldið að veruleika fyrir sitt framlag og Fjarðabyggð fyrir styrkinn