Fjölmenni á opnu húsi í Dalborg

Í tilefni þess að dagur leikskólans er á morgun var opið hús í leikskólanum Dalborg í dag  frá kl. 10:00-14:00 . Það var ánægjulegt að sjá hve margir gátu gefið sér tíma og litið inn.  

Á dögunum fengu elstu börnin í leikskólanum þá hugmynd að skrifa bæjarstýrunni bréf og óska eftir „alvöru fótboltavelli". Þetta var gert og skrifuðu þau bréfið sjálf og teiknuðu upp hvernig völlurinn ætti að líta út. Helga bæjarstýra og Þóroddur fræðslustjóri komu veittu bréfinu viðtöku.

Skoðið fleiri myndir á vef Dalborgar.
-
| Meira