Til Baka

Góðir gestir í heimsókn

 

Frétt frá leikskólanum Dalborg á Eskifirði:  Í gær fengum við góða gesti í heimsókn þá Þórodd Helgason, fræðslustjóra og Pál Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóra.

 

Páll hitti nemendur Grænudeildar sem sendu honum bréf í haust, sem innihélt beiðni um rennibraut handa okkur í Dalborg. Bæjarstjórinn gladdi okkur mikið þegar hann sagði okkur að rennibrautin kæmi í sumar. Sumir voru nokkuð hissa að "þetta væri bæjarstjórinn".

 

Við morgunverðarborðið í morgun voru miklar umræður og vangaveltur um bæjarstjórann okkar. T.d. "fer hann á bíl þegar hann fer í búð"  "í hvernig húsi býr hann?" "Ha, á bæjarstjórinn börn?" þessu reyndum við að svar eftir bestu getu.

 

-

Til Baka
| Meira