Til Baka

Hjörtur skrifaði verðlaunaritgerð um heimabyggðina


 
 
 
Nemendur í 8., 9. og 10. bekk Grunnskóla Reyðarfjarðar eru um þessar mundir að vinna verkefni sem kallast Heimabyggðin mín – nýsköpun, heilbrigði og forvarnir. Verkefnið er á vegum samtakanna Landsbyggðarvinir í Reykjavík og nágrenni. Hjörtur Elí Steindórsson í 10. bekk fékk sérstaka viðurkenningu fyrir ritgerð sína þar sem hann kemur inn á samgöngur í sveitarfélaginu.

Hjörtur fór til  Reykjavíkur mánudaginn 1. febrúar og tók á móti viðurkenningu og verðlaunum fyrir ritgerðina. Á myndinni er Hjörtur í góðum félagsskap með Unni Birnu Vilhjálmsdóttur sem er verndari verkefnisins, Frú Vigdísi Finnbogadóttur og Fríðu Völu Ásbjörnsdóttur formanni samtakanna.


Við óskum Hirti innilega til hamingju með þennan flotta árangur.
-

Til Baka
| Meira