Kæribær í vinnustaðaheimsóknum

Í tilefni Dags leikskólans á morgun 6. febrúar fóru nemendur Kærabæjar á Fáskrúðsfirði í vinnustaðaheimsóknir til að kynna starfsemi leikskólans í morgun.   Krakkarnir gerðu víðreist og fóru í frystihúsið, skrifstofu Loðnuvinnslunar, Samkaup, Landsbankann, heilsugæslustöðina, Uppsali og Sumarlínu. Börnin sungu og fengu leyfi til að hengja upp veggspjald sem hefur að geyma upplýsingar um áherslur og starf skólans.  Hér er yndisleg sumarmynd af nokkrum af nemendum Kærabæjar.
-
| Meira