Slökkvilið Fjarðabyggðar auglýsti lausa stöðu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns nýlega og rann umsóknarfrestur út þann 15. febrúar sl. Alls bárust 13 umsóknir um starfið. Búið er að fara yfir umsóknir og er komin niðurstaða í ráðningu. Ein kona var í hópi umsækjanda og var hún ráðin í starfið.
Um ráðningu starfsmanna í atvinnuslökkvilið gilda ákvæði laga 75/2000 og reglugerðar 792/2001. Að ráðningarferlinu komu yfirmenn slökkviliðsins, fulltrúi starfsmanna og mannauðsstjóri Fjarðabyggðar auk þess sem samráð var haft við stéttarfélag slökkviliðsmanna, LSOS. Að auki var ráðinn inn tímabundið annar úr hópi umsækjenda þar sem einum föstum starfsmanni hefur verið veitt ársleyfi. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf í apríl.