
Á vefmiðlinum pressan.is birtist þessi fína grein um tjaldsvæðið á Stöðvarfirði eftir Snæfríði Ingadóttur. Dagný Sverrisdóttir starfsmaður umhverfissviðs Fjarðabyggðar hefur umsjón með tjaldsvæðinu á Stöðvarfirði og hún fær verðskuldað hrós í grein Snæfríðar.
"Tjaldsvæðið á Stöðvarfirði er lítið, sætt og rómantískt. Smáatriði eins og lifandi blóm á klósettskúrnum setja mikinn svip á svæðið.
Það eru mörg falleg tjaldsvæði á Íslandi en fá þeirra eru þó jafn krúttleg og tjaldsvæðið á Stöðvarfirði. Þar gista ferðamenn frítt og pissa í salerni skreytt blómum.
Tjaldsvæðið á Stöðvarfirði er í austurenda bæjarins, rammað inn að skógargróðri. Þó tjaldsvæðið sé ekki stórt þá er það afar krúttlegt og vel er hugsað um það.
Það sem gerir tjaldsvæðið sérlega sætt er hversu blómlegt það er. Greinilegt er að sá sem sér um svæðið hefur auga fyrir fegurð og rómantík. Þannig er t.d. salernisskúrinn skreyttur lifandi blómum, sem setur óneitanlega sumarlegan svip á hann. Eins hefur stjúpum verið plantað við girðinguna og við tjaldstæðisskiltið.
Svona smáatriði geta skipt sköpun fyrir upplifun næturgesta af tjaldsvæðinu sem er að öðru leyti frekar látlaust. Ekki spillir heldur fyrir að það kostar ekkert að njóta krúttlegheitanna.
Skoðið þetta sæta tjaldstæði nánar á meðfylgjandi myndum. "
Fyrir næsta sumar minnum við á það er frítt að tjalda á notalegum tjaldsvæðinum Fjarðabyggðar á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði, Eskifirði og Norðfirði.