Uppgangur á Eskifirði

 

 Ingunn fyrir miðju á snyrtistofunni
 Blómabúðin Böggablóm
 Hörður hjá Böggabón
Um leið og Kata var heimsótt var gaman að kíkja á þrjú önnur ný þjónustufyrirtæki á Eskifirði.  Blómabúðina Böggablóm og bílaþvottastöðina Böggabón og Snyrtistofu Ingunnar.  Þetta eru allt glæsileg ný fyrirtæki sem eiga örugglega eftir að vaxa og dafna á Eskifirði

Það var spennandi  Bioherm snyrtivörukynning á Snyrtistofunni Ingunnar.  Á stofunni er fjöldi meðferða í boði bæði fyrir konur og karlmenn á fallegri stofu.   Sjá nánar á vefnum  www.ingunnar.is

Í blómabúðinni er mjög falleg gjafavara og sagði Árný að sé búið að vera mikið að gera hjá þeim síðan búðin var opnuð.  Blómabúðin tekur við og greiðir fyrir flöskur  og dósir  til endurvinnslu.   Bónstöðin Böggabón er í hinum endanum á húsinu - þar er hægt að fá bílinn þrifin og bónaðan.  Nú er loksins möguleiki fyrir þá sem eiga ekki bílskúr að vera á hreinum bíl á veturna.



Til hamingju með ný og flott fyrirtæki og bætta þjónustu á Eskifirði.
-
| Meira