
Togarinn Mars frá Brim lagði að Eskifjarðarhöfn með bilaðan gír í lok febrúar og eru starfsmenn Vélsmiðjunnar Hamars að vinna að viðgerð á honum.
Jón Kjartansson lagði að í gærkvöldi með tæp 2.000 tonn af loðnu til hrognatöku og Sólbakur kom í morgun til löndunar og verður aflanum keyrt að mestu til Akureyrar.