Katrín Guðmundsdóttir glerlistakona sem er með verkstæði Kötu opnaði í dag Gallerí með listmunum og ýmsu handverki. Galleríið er á 2. hæð í Samkaupumá Eskifirði og er opið frá 10:00 - 14:00 á laugardögum og frá 14:00 til 17:00 þriðjudaga til föstudaga. Munirnir hennar Kötu njóta sín vel í þessu bjarta og rúma húsnæði.
Lára Björnsdóttir vinnur með Kötu í Galleríinu en hún býr til handverk undir merkinu Föndur fjósakonunnar. Hún býr til tækifæriskort, kertaskreytingar og fleira. Thea leirlistakona frá Skorrastað verður líka með sínar vörur til sölu í Galleríinu hjá Kötu. Kata ætlar að vera með handverksnámskeið í Galleríinu og hún getur aðstoðað fólk sem vill versla í Stóru Rauðakrossbúðinni á opnunartíma Gallerísins.