
Á miðvikudagsmorgnum kl. 10:00 er þeim sem þurfa að æfa sig í íslensku boðið að koma í safnaðarheimilið á Reyðarfirði og spila og spjalla við sjálfboðaliða á vegum Rauða krossins og kirkjunnar. Allir eru velkomnir hvort sem þeir eru vanir að tala íslensku eða ekki.
Þeir sem vita af útlendingum sem vilja að æfa sig í íslensku eru hvattir til þess að láta þá vita af þessum möguleika. Þjálfunin er ókeypis og ekki þarf að skrá sig. Allir sem hafa lausa stund á miðvikudagsmorgnum og vilja hjálpa fólki að læra íslensku eru líka hjartanlega velkomnir.