Í gær var undirritaður samningur um ritun sögu Fáskrúðsfjarðar frá landnámi til ársins 2003 er Austurbyggð varð til. Samningurinn er milli Fjarðabyggðar, Sögufélags Fáskrúðsfjarðar og Smára Geirsonar sem hefur tekið að sér að rita söguna.
Skipuð verður Sögunefnd Fjarðabyggðar sem mun annast eftirlit með framkvæmd samningsins en í henni verða tveir fulltrúar Sögufélags Fáskrúðsfjarðar og einn fulltrú atvinnu- og menningarnefndar Fjarðabyggðar. Við upphaf verksins eru stefnt að verklokum árið 2014 en mikið starf bíður Smára við öflun heimilda og frumgagna. Samningurinn var undirritaður á hjúkrunarheimilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði.
Á myndinni eru Friðmar Gunnarsson formaður Sögufélags Fáskrúðsfjarðar, Smári Geirsson, Helga Jónsdóttir bæjarstýra og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir formaður atvinnu- og menningarnefndar við undirritun samningsins.