Til Baka

Skíðaveturinn fer vel af stað

 

Nú hefur verið opið í 21 dag í Oddsskarði en fyrsti opnunardagur skíðavetrarins var annar í jólum. Opið er frá 10:00 – 16:00 um helgar og frá 16:00 – 19:00 á virkum dögum þegar aðstæður leyfa.

 

Síðasta sunnudag var frítt í fjallið í Oddsskarði í tilefni af alþjóðlega snjódeginum og mættu um 500 manns og nutu þess að renna sér í einstakri veðurblíðu. Gert er ráð fyrir þýðu um helgina en væntanlega verður opið á morgun laugardag en verr lítur út með sunnudaginn.

 

Dagfinnur forstöðumaður segir að síðan muni kólna aftur í næstu viku og að stefnt sé að því að opna topplyftuna um næstu helgi.

 

-

Til Baka
| Meira