Til Baka

Sómastöðum sómi sýndur

 

 

Þjóðminjasafn Íslands hefur unnið að gagngerri viðgerð á Sómastöðum við Reyðarfjörð síðastliðin tvö ár.  Nú er viðgerð hússins lokið og var því fagnað í móttöku á Sómastöðum í gær. Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður lýsti verkefninu og þakkaði fyrir veglega  styrki frá Menningarráði Austurlands og  Alcoa Foundation  og frábært samstarf við Húsafriðunarnefnd, iðnaðarmenn  og fleiri sem unnu frábært starf að Sómastöðum.

 

Steinhúsið á Sómastöðum er byggt árið 1875. Útvegsbóndinn og hreppstjórinn Hans Jakob Beck (1838-1920) lét reisa húsið sunnan við torfbæ sem þá stóð á jörðinni. Tvílyft timburhús stóð um tíma við vesturgafl steinhússins og var innangengt á milli á báðum hæðum. Eftir að nýtt íbúðarhús var byggt á jörðinni um 1950 var timburhúsið tekið niður en inngangsskúr var byggður í staðinn.

 

Nú hefur verið sett upp sýning í húsinu, annars vegar með myndum og textum sem segja frá búskaparháttum á jörðinni eftir að húsið var byggt og því fólki sem þar bjó.   Á efri hæðinni er svo búið að búa til litla eftirmynd af heimili eins og það gæti hafa litið út upp úr aldamótunum  1900.  Pétur Sörensson og Elfa Hlín Pétursdóttir sáu um hönnun og uppsetningu sýningarinnar.

 

Sómastaðir verða reknir í samstarfi Safnastofnunar Fjarðabyggðar og Minjasafns Austurlands en eigandi þess verður áfram Þjóðminjasafn Íslands.  Þar er hægt að halda sýningar og litla viðburði s.s. fundi,  upplestra,  kammertónleika ofl.  Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Pétur Sörensson í síma 470 9000 eða á sofn@fjardabyggd.is

-

Til Baka
| Meira