Til Baka

Þróttur heiðrar efnilega íþróttamenn

3.2.2012

 

Hér kemur frétt frá hinu frábæra og öfluga íþróttafélagi Þrótti í Neskaupstað.  Hlutaðeigandi eru beðnir velviðingar á því að fréttin birtist hér seint og um síðir:   

 
 
Íþróttafélagið Þróttur heiðraði efnilega íþróttamenn félagsins þriðjudaginn 27. desember sl.

Þau eru:

Anton Bragi Jónsson fyrir knattspyrnu.  Anton er fastamaður í liði 3.flokks Fjarðabyggðar og hefur þrisvar sinnum verið kallaður á úrtaksæfingar hjá U-17 á seinniparti ársins og nú í byrjun desember spilaði hann sinn fyrsta meistaraflokksleik.

 

Hekla Lív Maríasdóttir fyrir sund.  Hekla  van afreksbikar á sumar´hátíð ÚÍA fyrir stúlkur 13 – 14 ára. Hún vann 7 verðlaunapeninga á sumarhátíð ÚÍA.  1 verlaunapening fyrir 5 sæti á Landsmóti UMFÍ og 7 verluanapeninga á meistaramóti ÚÍA.

 

Lilja Tekla Jóhannsdóttir fyrir skíði. Lilja náði 4 sæti á bikarmóti SKÍ fyrir 15 – 16 ára flokki. Á öðrum mótum var hún að skila sér í mark í 7 – 12 sæti. Lilja var að keppa í fyrsta sinn í fullorðiinsflokki  og á aðþjóðamótum. Hún kláraði 10 mót af 13 sem hún tók þátt í, sem telst mjög góður árangur á hennar fyrsta ári í fullorðinsflokki.

 

Helena Kristín Gunnarsdóttir fyrir blak. Helena var einn af máttarstólpum í meistaraflokki kvenna sem vann þrefalt á keppnistímabilinu og eru Íslands-, bikar-, og deildarmeistarar með Þrótti. Helena spilaði með þremur landsliðum á árinu, A landsliði kvenna, U- 19 ára landsliði og  U – 19 ára landsliði í strandblaki.

 

Þróttur heiðraði Heiðu Elísabetu Gunnarsdóttur sem tók þátt í frjálsum íþróttum hjá Þrótti í sumar. Heiða vakti mikla athygli á Unglingalandsmótinu í sumar. Hún vann þrenn gullverðlaun í frjálsíþróttum, auk silfur – og bronsverðlauna.  Árangurinn er ekki síst merkilegur fyrirr þær sakir að Heiða kynntist fyrst frjálsíþróttum í byrjun sumar þegar hún sótti farandsæfingar ÚÍA í Neskaupstað og fór síðan á Frjálsíþróttaskólann.

  
Við óskum þessum köppum til hamingju með glæsilegan árangur.


Til Baka
| Meira