Til Baka

Tónlistarkeppnin Nótan haldin í fyrsta sinn

Tónlistarkeppnin „Nótan“ var haldin í Grunnskóla Reyðarfjarðar um helgina og voru keppendur nemendur frá Tónlistarskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar.  Keppnin fór þannig fram að keppendur fluttu lög að eigin vali og áheyrendur kusu svo flytjendur sem þeim leist best á.    

Sigurvegarar keppninnar voru þau Ásbjörn Þorsteinsson og Kamilla Borg Hjálmarsdóttir sem fluttu lagið "Mad World" og Garðar Eðvaldsson spilaði á saxofón "Morning Dance" frá hljómsveitinni Spyro Gyra en það voru áheyrendur sem kusu sigurvegara keppninnar.  

Næsti hluti keppninnar fer fram í Ketilhúsinu á Akureyri laugardaginn 13. mars.  Tíu skólar á Norður- og Austurlandi taka þátt og valnefnd ákveður hvaða atriði komast svo áfram í lokakeppni til Reykjavíkur.  

Við óskum Ásbirni, Kamillu og Garðari til hamingju með sigurinn og góðs gengis fyrir norðan.
-

Til Baka
| Meira