Til Baka

Útgáfa lagsins "STÖÐVARFJÖRÐUR"

 

Fyrir margt löngu tilkynnti undirritaður að tekin hefði verið ákvörðun um að gefa út á geisladiski lag Eyjólfs Ólafssonar við kvæðið "Stöðvarfjörður" eftir Björn Jónsson frá Kirkjubóli. Af ýmsum ástæðum hefur framgangur verksins tafizt, en nú er svo komið að einungis er eftir að fjölfalda diskinn (500 eintök til að byrja með) og prenta bækling, sem verður hluti af útgáfunni, myndefni og ýmsar upplýsingar, sem gera munu diskinn ennþá eigulegri. Undirbúningur prentunarinnar er hafinn og fjölföfldun er að fara í gang. Diskurinn ætti að verða tilbúinn til sölu / afhendingar eigi síðar en um miðjan sept. 2010.

 

Eftirfarandi verkþáttum er lokið.

Ákveðið hefur verið að útgáfan fái nafnið "Milli himinhárra fjalla" / undirtitill: Stöðvarfjörður.  Teknar hafa verið upp tvær útgáfur af verkinu, nánar tiltekið:

KLASSÍSKA ÚTGÁFAN:

Útsetning og undirleikur:    Daníel Þorsteinsson.
Söngur:                            Álftagerðisbræður.
Upptaka og hljóðbl.:           Kristján Edelstein.

 

POPPAÐA ÚTGÁFAN:       

Útsetning:                       Ágúst Ármann Þorláksson.
Undirleikur:                     Magnús Kjartansson o.fl.
Söngur:                           Ellert Borgar Þorvaldsson.
Bakrödd:                        Bjarni Freyr Ágústsson
Upptaka:                        Magnús Kjartansson    

 

Safnað hefur verið styrkjum og áheitum að fjárhæð kr. 376.000.-, en til að dæmið gangi upp þarf að selja allt að 500 diska eða verkefnið að njóta gjafmildi fleiri en orðið er.

Verð á diski var ákveðið kr. 1.000.- (að viðbættum sendingarkostnaði þar sem það ætti við). Diskurinn mun verða til sölu á Stöðvarfirði, á höfuðborgarsvæðinu, í Ungverjalandi og víðar. Nú þegar liggja fyrir pantanir á nokkrum diskum en eðlilega var þess ekki að vænta að forsala þeirra færi í gang, fyrr en fyrir lægi, hvort lokið yrði við áformin eður ei.  Það treystir undirritaður sér til að fullyrða á þessari stundu og heitir því á alla velunnara byggðarlagsins og áhugamenn um útgáfu íslenzkrar tónlistar að bregðast vel við og panta nú þegar disk(a) á netfangið bibbasin@simnet.is og/eða leggja inn styrkfjárhæð á reikning nr. 0171-05-571315 / 160147-3859, ásamt upplýsingum um nafn þess, sem veitir styrkinn.

 

Fjárhaldsmenn verkefnisins eru Þóra Björk Nikulásdóttir í Landsbankanum á Stöðvarfirði og undirritaður. Með okkur í verkefnisstjórn er sr. Gunnlaugur Stefánsson.

 

Minnt er á að í upphaflegri tilkynningu kom fram að komi verkefnið út með jákvæðan fjárhag, verður fjármagni því sem eftir kann að standa ráðstafað til frekari útgáfu á verkum stöðfirzkra tónlistarmanna og/eða til Stöðvarfjarðarkirkju.

 

Með fyrirfram þakklæti og alúðarkveðjum;

 

Bj. Hafþór Guðmundsson

 

-

Til Baka
| Meira