Til Baka

Valur býður upp á handboltaæfingu með þeim bestu

Á morgun, fimmtudaginn 11. mars, munu Sigfús Sigurðsson, handboltastjarna og  Kristján Halldórsson, handboltaþjálfari í þjálfarateymi yngri landsliða Íslands, vera með handboltaæfingu í íþróttahúsinu á Reyðarfirði. Æfingin er  fyrir þá nemendur í 5. – 10. bekk sem æfa handbolta á vegum ungmennafélagsins Vals, en allir áhugasamir krakkar í 5. – 10. bekk eru velkomnir.  

Æfingin byrjar kl. 16:30 og stendur framyfir  kvöldmat. Það er ungmennafélagið Valur Reyðarfirði sem stendur fyrir þessari skemmtilegu heimsókn, en félagið hefur staðið fyrir handboltaæfingum frá því í janúar. Æfingarnar hafa farið fram í  íþróttahúsinu á Reyðarfirði og það eru þeir Þórður Vilberg Guðmundsson og Magnús Karl Ásmundsson sem hafa þjálfað.

Föstudaginn 12. mars verða þeir Sigfús og Kristján í Grunnskóla Reyðarfjarðar.
-

Til Baka
| Meira