Niðurstöður rannsókna á vatnssýnum sem Heilbrigðiseftirlit Austurlands tók síðdegis í gær leyfa að hömlum sé nú létt af notkun vatns á Eskifirði. Íbúar þurfa því ekki lengur að sjóða vatn til drykkjar eins og þeir hafa þurft að gera frá 9. júlí þegar ljóst varð að mengun hafði komist út í kerfið. Íbúum eru færðar þakkir fyrir góð viðbrögð og skilning á aðstæðum.
Vatnsveita Fjarðabyggðar
Heilbrigðiseftirlit Austurlands