Hópur Veraldarvina vinnur nú að uppgræðslu í Eskifjarðardal. Þetta er fjórða sumarið sem unnið er að landformun og uppgræðslu. Efnistökusvæðin í dalnum hafa verið jöfnuð og sáð í þau. Eftir þetta sumar má segja að öll þau svæði þar sem efnistaka fór fram í dalnum síðustu áratugi hafi verið grædd upp og mun landið jafna sig og gróa frekar á næstu árum.
Verkefnið er unnið með liðstyrk frá Vegagerðinni og Landgræðslu ríkisins.
Á efri myndinni eru Veraldarvinir frá öllum heimshornum að hvíla lúin bein í hádeginu. Á neðri myndinni má sjá eitt af svæðunum sem Veraldarvinir hafa unnið við að græða upp.