Til Baka

Verkfall slökkviliðs og sjúkraflutningamanna

 

 

Á morgun, föstudaginn  23. júlí, hefst dagsverkfall þeirra félagsmanna í Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna sem hafa slökkvistörf og sjúkraflutninga að aðalstarfi. Verkfallið nær ekki til hlutastarfandi slökkviliðs- og sjúkarflutningamanna.

 

Slökkvilið Fjarðabyggðar er minnsta atvinnuslökkvilið landsins. Það er blandað lið og hefur á að skipa 14 atvinnumönnum og 54 hlutastarfandi mönnum. Slökkviliðið sér um framkvæmd sjúkraflutninga í Fjarðabyggð samkvæmt samningi við Heilbrigðisstofnun Austurlands.

 

Verkfallið mun ekki hafa áhrif á starfsemi slökkvi- og sjúkraliðs á Norðfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði. Á Reyðarfirði og Eskifirði verður hins vegar röskun á starfsemi en mikilvægt er að almenningur sé upplýstur um að öllum neyðarbeiðnum verður sinnt. Á það við bæði um slökkvistörf og sjúkraflutninga.

 

Samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna er þeim sem starfa við nauðsynlegustu öryggisgæslu og heilbrigðisþjónustu, ekki heimilt að fara í verkfall. Þá er heimilt, þótt verkfall sé hafið, að kalla starfsmenn í verkfalli tímabundið til vinnu í þeim tilgangi að afstýra neyðarástandi.  Slökkvilið Fjarðabyggðar á þannig að geta tryggt  að neyðarbeiðnum verði sinnt.

 

Guðmundur Helgi Sigfússon

Slökkviliðsstjóri

-

Til Baka
| Meira