Einn nemandi í grunnskólum Fjarðabyggðar var dreginn út sem vinningshafi í getraun LSS í febrúar. Það var nemandi í 3. bekk Grunnskóla Eskifjarðar, Eva Björk Björgvinsdóttir, sem hafði heppnina með sér í þetta skiptið. Slökkviliðsmenn heimsóttu bekkinn hennar á 112 daginn og afhentu henni verðlaunin sem voru reykskynjari, MP 3 spilari, Slökkviliðsmaðurinn sem er kynningarblað LSS og að sjálfsögðu verðlaunaskjal.
Slökkviliðið sinnir forvarnarstarfi eftir bestu getu og heimsækir leik- og grunnskóla Fjarðabyggðar á hverju ári. Rýmingaráætlun hvers skóla er kynnt og æfð og farið með börnunum yfir helstu öryggisatriði varðandi eld og eldvarnir heimila. Á þessum vetri var sérstaklega tekin fyrir í samstarfi við rannsóknarnefnd umferðarslysa, umgengni um hópferðabíla og notkun öryggisbelta. Þá var Verkmenntaskóli Austurlands í Neskaupstað einnig heimsóttur að þessu sinni í sama tilgangi.
Með leikskólabörnum í elsta árgangi er árlega unnið verkefni sem ber nafnið Logi og Glóð. Þar þurfa börnin að leysa ýmsar þrautir og skoða skólann sinn með tilliti til eldvarna og öryggismála. Þau bera þann lærdóm inn á sín heimili og hafa reynst hinir bestu liðsmenn eldvarnaeftirlits slökkviliðsins.