Fjölsóttur Tæknidagur fjölskyldunnar
16.04.2024Tæknidagur fjölskyldunnar var haldinn í Verkmenntaskóla Austurlands á Norðfirði í níunda sinn laugardaginn 13. apríl síðastliðinn. Fjöldi manns lagði leið sína í Norðfjörð til að kynna sér það helsta sem Austurland hefur upp á að bjóða á sviði tækni, vísinda, nýsköpunar, verkmennta og þróunar. Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg höfðaði til allra aldurshópa.