Öruggara Austurland: Farsæld barna
18.04.2024Síðastliði haust tók fjöldi aðila saman höndum um að vinna gegn ofbeldi og öðrum afbrotum undir heitinu Öruggara Austurland. Samstarfsyfirlýsing um svæðisbundið samráð um afbrotavarnir, sú fyrsta sinnar tegundar, var undirrituð þann 4. október sl. Markmið samráðsins eru m.a. að vinna enn markvissara að öryggi íbúa, auka skilning á ofbeldi og skaðsemi þess, efla samstarfsaðila í að takast á við áföll og ofbeldi, vinna í takt við önnur verkefni í almannaþágu, s.s. innleiðingar á farsæld barna, lýðheilsuvísa, áætlanir sveitarfélaga o.fl.