11.00.2010 - 11.00.2010
Árshátíð Grunnskóla Reyðarfjarðar
Árshátíð Grunnskóla Reyaðrfjarðar verður haldin í sal Grunnskóla Reyðarfjarðar, fimmtudaginn 11. mars kl. 20:00. Aðgangseyrir 1000 kr. og eru innifaldar veitingar í hléi.
Flutt verða skemmtiatriði frá nemendum í 1. - 7. bekk en að sjálfsögðu bjóðum við alla velkomna, mömmur, pabba, ömmur, afa, frændur, frænkur og alla sem áhuga hafa á að sjá líflegt leikhús.
Dagskrá:
1. bekkur Hver er ég og hvað vil ég verða
2. bekkur Bekkjarfundur
3. og 4. bekkur Við gerum okkar besta
5. - 7. bekkur ÁSTAN 2010
Við hvetjum ykkur til þess að koma í heimsókn til okkar og sjá afrakstur vikunnar en nemendur hafa virkilega lagt sig fram við undirbúning og æfingar fyrir þessa miklu hátíð.
Sjáumst vonandi sem flest,
Nemendur og starfsfólk
Grunnskóla Reyðarfjarðar
Annað á döfinni