26.01.2012 17:00 - 31.01.2012 18:00
Ungbarnasund á Norðfirði og Fáskrúðsfirði
Ungbarnasund á Austurlandi
Ný námskeið í ungbarnasundi eru að hefjast.
Námskeiðin hefjast fimmtudaginn 26. janúar í Neskaupstað og föstudaginn 27. janúar á Fáskrúðsfirði. Námskeiðin eru eftirfarandi:
Neskaupstað:
o Byrjendanámskeið fimmtudaga kl. 17:00
o Framhaldsnámskeið fimmtudaga kl. 18:00
Fáskrúðsfirði:
o Byrjendanámskeið föstudaga kl. 13:45
o Framhaldsnámskeið föstudaga kl: 14:45
Byrjendanámskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 3 - 8 mánaða og framhaldsnámskeið börnum sem hafa lokið byrjendanámskeiði. Hvert námskeið er 8 skipti og hver tími er 40 mínútur. Námskeiðisgjald er 9.600 krónur. Athugið að í Neskaupstað er kennt í laug sjúkrahússins og gengið er inn að neðanverðu.
Kennarar á námskeiðunum eru Guðbjörg Rós Guðjónsdóttir og Vilborg Stefánsdóttir. Báðar eru sjúkraþjálfarar og eru meðlimir í BUSLA, félagi ungbarnasundkennara á Íslandi.
Skráning á námskeið í Neskaupstað fer fram hjá Vilborgu í síma 864-1193 eða á netfangið thiljuvellir21@simnet.is
Skráning á námskeið á Fáskrúðsfirði fer fram hjá Guðbjörgu Rós í síma 867-1221 eða á netfangið gudbjorgros@simnet.is
Frekari upplýsingar um námskeiðin og hagnýtar upplýsingar um ungbarnasund á fésbókarsíðunni: Ungbarnasund á Austulandi.
Annað á döfinni