29.01.2012 12:00 - 29.01.2012 18:00
Ávaxtamót ÚÍA

 

Ávaxtamót UÍA fyrir 10 ára og yngri verður á sunnudaginn 29. janúar, í íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði og hefst kl 12. Þar verður keppt í flokkum stráka og stelpna 8 ára og yngri og 9-10 ára í spretthlaupi, langstökki án atrennu, boltakasti og þrautaboðhlaupi.

 

Eins og jafnan á mótum hjá  yngstu frjálsíþróttaköppunum ræður leikgleðin ríkjum, glaðbeittir ávextir kíkja í heimsókn og allir þátttakendur fá glaðning í viðurkenningarskyni fyrir þátttökuna. Þátttökugjald er 600 kr. á keppenda óháð greinafjölda. Á þetta mót eru allir krakkar 10 ára og yngri hjartanlega velkomnir og skiptir þar engu hvort þeir hafa reynslu af frjálsíþróttaiðkun eða ekki.

 

Skráningar á mótið skulu berast í netfangið uia@uia.is, þátttakendur eru eindregið hvattir til að skrá sig fyrirfram þar sem það einfaldrar undirbúning verulega, en þó verður tekið við skráningum á staðnum.

 

Mótsgjöld skulu greiðast á reikning UÍA 305-26-4104 kt 6602694369 eða á staðnum áður en mót hefst.

 


| Meira
Annað á döfinni