19.06.2010 11:00 - 26.06.2010 23:00
Göngu- og gleðivikan "Á fætur í Fjarðabyggð"
Dagskrá gönguvikunnar:
Laugardagur 19.júní
kl 10:00.
1.Göngu og bátsferð á Barðsneshorn
Mæting við safnahúsið á Norðfirði þaðan sem bátur flytur fólk að Barðsnesi.
Gengið frá Barðsnesbænum og út með Rauðubjörgum og yfir á Mónes. Steingerfingarnir í fjörunni skoðaðir. Gengið út á Barðsneshorn og þaðan inn á Barðsnes.
Ína D. Gísladóttir fer styttri hring og rifjar upp sögur.
Báturinn tekin til baka.
Fararstjóri: Sævar Guðjónsson. Sími: 698-6980.
Verð kr. 2.000.- fyrir fullorðna.
Kl 20:00
2.Sólstöðuganga á Álffjall
Mæting á Víkurheiði. Gengið frá heiðinni út með Illahjalla,Stórafelli og yfir Sléttuskarð þaðan sem uppganga er á fjallið. Um 7km ganga fram og til baka.
Doddi á Skorrastað stjórnar fjallasöng. Fjallameðferð
Fararstjóri: Kristinn Þorsteinsson, sími: 864-7694
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.
Kl 21:00
Kvöldvaka í Randulffssjóhúsi
Í umsjá Ferðaþjónustunnar Mjóeyri við Eskifjörð.
Sagnaþulurinn Friðrik Þorvaldsson segir okkur sögurnar af Breiðuvíkurkaupstað og einokunarverslun Dana, sú saga tengist gönguferð sunnudagsins Í fótspor Magnúsar sterka. Listamaður Gönguvikunnar, Sigmundur Ernir Rúnarsson flytur fjallaljóð.
Leikin verður lifandi tónlist. Verð kr. 1.000.- fullorðna.
Sunnudagur 20.júní
Kl 10:00
3. Í fótspor Magnúsar Sterka.
Mæting við Útstekk í norðanverðum Reyðarfirði
Gengið frá Útstekk um Haugaöxl, Karlstaðarsveif, Vindháls og Kvígindisdal í Hellisfjörð (um 20 km). Rifjaðar upp sögurnar af Magnúsi sterka, dysinni í Dysjarskarði og fl. Frá Hellisfirði verður bátsferð til Norðfjarðar. Þeir hörðustu geta gengið áfram um Götuhjalla að Grænanesi í Norðfirði.
Fararstjóri: Sævar Guðjónsson. Sími: 698-6980.
Verð kr. 2.000.-fyrir fullorðna.
kl 17:00
4. Fjölskylduganga um Hólatjarnir í Fannardal.
Mæting innan við Naumamel í Fannardal.
Ævintýraland, dansað fyrir náttúruna, fjallameðferð og leikir. hafið með ykkur gott nesti. Fararstjóri: Ína D. Gísladóttir, sími: 894-5477.
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.
Kl 21:00
Kvöldvaka í Randulffssjóhúsi
Hljómsveitin FARVEL frá Norðfirði skipuð þeim Jóni Hilmari Kárasyni gítar, Valdimari Þór Valdimarssyni söngur og gítar, Þorláki Ægi Ágústssyni bassa og Orra Smárasyni á trommur munu flytja frumsamið efni í bland við lánað. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá. Verð kr. 1.000.
Mánudagur 21.júní
Kl 10:00.
5.Gengið á Goðaborg 1132m (eitt af fjöllunum fimm í Fjarðabyggð)
Mæting við Tandrastaði í Fannardal Norðfirði.
Fararstjórar: Árni Ragnarsson og Kristinn Þorsteinsson, sími: 864-7694.
Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.
kl 17:00
6. Fossaskoðunarferð í Eskifirði.
Mæting við Veturhús.
Gengið upp með Innri Þverá upp í Þverárdal og niður með Ytri Þverá.
Fossar og berggangar skoðaðir.
2-3 klst.ganga fyrir alla fjölskylduna.
Fararstjóri: Sævar Guðjónsson, sími: 698-6980.
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.
Kl 21:00
Kvöldvaka á Mjóeyri
Í umsjá Ferðaþjónustunnar Mjóeyri við Eskifjörð.
Yngri kynslóðin skemmtir þetta kvöld. Aðgangur ókeypis.
Þriðjudagur 22.júní
kl 10:00
7.Gengið á Hólmatind 985m (eitt af fjöllunum fimm í Fjarðabyggð)
Mæting við Sómastaði í Reyðarfirði
Fararstjórar: Kristinn Þorsteinsson og Árni Ragnarsson, sími:864-7694.
Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.
kl 17:00
8.Hólmanes, göngu og bátsferð fyrir alla fjölskylduna
Mæting neðan við sjónvarpsmastrið sunnan Eskifjarðar
Gengið eftir fræðslustígum út með Eskifirði að Skeleyri og út á nesið. Sögur sagðar og fjölbreitt plöntu og fuglalíf skoðað. Gengið inn að Borgarsandi þar sem bátar Bátaleigu Mjóeyrar og ræðarar frá Kajakklúbbnum Kaj bíða göngugarpa.
kl 19:00 Grillveisla á Borgarsandi
Allir sem vilja koma sjóleiðina velkomnir í grillið. Ef veður leifir verður siglt til baka.
Farstjóri: Berglind Steina Ingvarsdóttir, sími: 696-0809.
Skipstjóri: Sævar Guðjónsson, sími: 698-6980.
Verð í göngu og grill kr. 1.500.- fyrir fullorðna.
Kl 21:00
Kvöldvaka á Mjóeyri
Í umsjá Ferðaþjónustunnar Mjóeyri við Eskifjörð og Kajakklúbbsins Kaj.
Lifandi tónlist og kajakar. Aðgangur ókeypis.
Hægt verður að prófa kajak í Mjóeyrarvíkinni. Verð kr.500.-
Miðvikudagur 23.júní
kl 10:00
9.Gengið á Hádegisfjall 809m (eitt af fjöllunum fimm í fjarðabyggð)
Mæting á bílastæðið við Fáskrúðsfjarðargöngin, Reyðarfjarðarmegin.
Fararstjórar: Árni Ragnarsson og Kristinn Þorsteinsson, sími: 864-7694.
Verð kr. 500 fyrir fullorðna.
kl 17:00
10.Gönguferð fyrir alla fjölskylduna upp með Búðará í Reyðarfirði
Mæting við Stríðsárasafnið.
Gengið þaðan upp með Búðarárgili og það skoðað. Stíflan ofan við gilið skoðuð og lögnum frá henni fylgt niður að stöðvarhúsinu þar sem við fáum að skoða rafstöðina og hvernig rafmagnið verður til.
Fararstjóri: Þóroddur Helgason, sími: 860-8331. Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.
Kl 21:00
Kvöldvaka í Randulffssjóhúsi
Í umsjá Ferðaþjónustunnar Mjóeyri við Eskifjörð.
Söng- og leikkonan Jóhanna Vigdís Arnardóttir (Hansa) skemmtir ásamt Daníel Ara.
Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.
kl. 23:00
11.”Nóttin er ung” Næturganga á Jónsmessunótt.
Mæting við Geithúsá í Oddsdal.
Gengið frá Geithúsá í Oddsdal um Hnúka og Hellisfjörð til Norðfjarðar. Yoga í átt til sólar í dögun, fjallameðferð. Takið með ykkur gott nesti og njótið sumarnæturinnar (6 tímar).
Fararstjóri: Ína D. Gísladóttir, sími: 894-5477. Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.
Fimmtudagur 24.júní
kl 10:00
12. Gengið á Kistufell 1239m (eitt af fjöllunum fimm í Fjarðabyggð)
Mæting við Áreyjar í Reyðarfirði
Fararstjórar: Kristinn Þorsteinson og Árni Ragnarsson, sími: 864-7694.
Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.
kl 17:00
13. Gönguferð fyrir alla fjölskylduna upp með Svartagili í Fáskrúðsfirði.
Mæting á snúningsplaninu sunnan Fáskrúðsfjarðar, móti kaupsstaðnum.
Gengið upp með Svartagili, fossar og berggangar í gilinu skoðaðir.
Um 2 klst. gangur.
Fararstjóri: Eyþór Friðbergsson, sími: 865-2327. Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.
Kl 21:00
Kvöldvaka í Randulfssjóhúsi
Sagnaþulurinn frábæri Berglind Ósk Agnarsdóttir kveður rímur og skemmtir okkur þetta kvöld ásamt lifandi tónlist. Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.
Föstudagur 25.júní
kl 10:00
14. Gengið á Svartafjall 1021m (eitt af fjöllunum fimm í Fjarðabyggð)
Mæting á gamla Oddsskarðsveginn Eskifjarðarmegin
Fararstjórar: Kristinn Þorsteinsson og Árni Ragnarsson, sími: 864-7694
Verð kr. 1.000.- fyrir fullorðna.
kl 17:00
15. Gengið að Einbúanum sem fallið hefur úr brúnum Gráfells
og að steinboganum í Álftafelli.
Mæting við bæinn Stöð í Stöðvarfirði
Fararstjóri: Sara Jakobsdóttir, sími: 896-0349. Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.
Kl 20:00
Sjóræningjakvöldvaka á Mjóeyri
Ýmis óvænt atriði verða þetta kvöldið. Eiríkur kóngur I. Langsokkur einvaldi á Kattarattarey mætir á svæðið ásamt dóttur sinni Línu Langsokkur og sjá þau til þess að allir skemmta sér vel saman. Varðeldur og lifandi tónlist. Aðgangur ókeypis.
Laugardagur 26. júní
kl 10:00
16. Gengið fyrir Krossanes til Vöðlavíkur
Mæting við Karlsskála við norðanverðan Reyðarfjörð
Gengið frá Karlsskála um Karlskálaskriður, Krossanesskriður og Kirkjubólsskriður til Vöðlavíkur. Gengið að flaki Henkel 111, þýskrar orrustuflugvélar, á Valahjalla.
Fararstjóri Sævar Guðjónsson, sími: 698-6980.
Verð kr. 2.000.- fyrir fullorðna.
kl. 12:00
17. Fjöruferð og söguganga í Vöðlavík.
Mæting við Karlsstaði skála Ferðafélags Fjarðamanna í Vöðlavík.
Gengið út víkina, sögur sagðar af byggðinni í víkinni og fleiri sögur.
Ingibjörg Þ. Stefánsdóttir mætir í gönguna en hún er fædd og uppalin á Ímastöðum í Vöðlavík.
Sandkastalabygging á sandinum og fl. Veitingar að Karlsstöðum í lok ferðar.
Fararstjóri: Ína D. Gísladóttir, sími: 894-5477.
Verð kr. 1.500.- fyrir fullorðna. Veitingar innifaldar í verði.
Kl.20:00
Vegleg Lokakvöldvaka á Mjóeyri
Í umsjá Ferðaþjónustunnar Mjóeyri við Eskifjörð og fl. Grillveisla í boði Eskju.
Útisvið, lifandi tónlist og varðeldur. Aðgangur ókeypis.
· Frítt er fyrir 16 ára og yngri í gönguvikuna en skilyrði er að þau séu í fylgd með fullorðnum.
· Náttúru og leikjanámskeið verður alla dagana frá kl. 9:30-17:00 á vegum Náttúrustofu Austurlands og Ferðaþjónustunnar Mjóeyri.
Forgang hafa börn ,,Göngugarpa”. Nánari upplýsingar og bókanir hjá Berglindi í síma 696-0809 eða 477-1247.
Bækling gönguvikunnar má nálgast hér á pdf forsíðaog baksíða
Annað á döfinni