Úthlutun úr frumkvæðissjóði Sterks Stöðvarfjarðar
25.03.2024Þann 21.mars var rúmum 11 milljónum úthlutað úr frumkvæðissjóði Sterks Stöðvarfjarðar. Alls bárust 23 umsóknir og heildarkostnaður verkefna er tæplega 37 milljónir en heildar upphæð umsókna var um 27 milljónir. Í ár fengu 18 verkefni úthlutað styrk úr sjóðnum en þetta er þriðja úthlutun verkefnisins Sterkur Stöðvarfjörður. Það er ljóst að það er mikill hugur í fólki og mikill kraftur hér í samfélaginu á Stöðvarfirði.