Til Baka

Tónlistamaður úr Fjarðabyggð hlýtur verðlaun í Hollandi

 Einar Torfi Einarsson hlaut verðlaun ,,Henriëtte Bosmans Prize” sem efnilegasta ungtónskáld í Hollandi á sviði klassískar nútímatónlistar. Verðlaunin eru veitt af hollenska tónskáldafélaginu.

Hollenski tónlistarhópurinn Insomnio Ensemble flutti nýtt tónverk Norðfirðingsins  Einars Torfa Einarssonar í Muziekgebouw ann´t IJ í Amsterdam laugardaginn 8. nóvember sl. Verkið, Nine Tensions, er skrifað fyrir kammersveit og var jafnframt tekið upp til flutnings á Radio, 4 klassískri rás ríkisútvarpsins í Hollandi.

Einar Torfi, sem stundar mastersnám í tónsmíðum við The Conservatorium van Amsterdam, var í sumar tilnefndur til verðlauna"Henriëtte Bosmansprijs 2008" af Asko/Schoenberg Ensemble fyrir verk sitt Nine Tensions, sem hann samdi fyrir Ligeti Academi og var frumflutt 15. maí sl.

Verk hans og þriggja annarra tónsmiða, voru valin til flutnings 8. nóvember í Amsterdam. Verðlaunin voru veitt að afloknum tónleikunum af hollenska tónskáldafélaginu. Henriëtte Bosmansprijs eru vel virt verðlaun sem veitt eru efnilegustu ungu tónskáldum á sviði klassískrar nútímatónlistar í Hollandi. Þau hafa verið veitt síðan 1994.

Þess má geta að þó nokkur íslensk tónskáld hafa lagt stund á tónsmíðanám í konservatoríinu í Amsterdam gegnum tíðina. Skólinn var stofnaður árið 1884 og þykir einn sá kröftugasti í Evrópu samtímans.
-

Til Baka
| Meira