Til Baka

Fjórir styrkir samþykktir hjá Rannsóknarsjóði

 

 

Nýlega var úthlutað styrkjum úr Rannsóknarsjóði Fjarðabyggðar og Landsbanka Íslands í fjórða sinn en sjóðurinn hét áður Rannsóknarsjóður Austurbyggðar og Landsbankans og hafði starfað í nokkur ár fyrir sameininguna.

Markmið með starfsemi sjóðsins er að efla samstarf Fjarðabyggðar við háskólastofnanir landsins, koma sveitarfélaginu Fjarðabyggð inn í íslenskt rannsóknarsamfélag á markvissan hátt og að hvetja háskólafólk til að vinna lokaverkefni sín í og um Fjarðabyggð.
 

Guðmundur Þorgrímsson bæjarfulltrúi er formaður stjórnar sjóðsins og Björn Guðmundsson, útibússtjóri Landsbanka Íslands á Fáskrúðsfirði og Ingibjörg Ólafsdóttir upplýsingafulltrúi eru meðstjórnendur.

Að þessu sinni fengu fjögur verkefni úthlutað styrk frá sjóðnum en þau eru:

  • Skipulagseinkenni þéttbýlisstaða í fjörðum og áhrifavaldar á skipulagsþróun þeirra.   María Guðbjörg Jóhannsdóttir.  Landbúnaðarháskóli Íslands, Meistaranám í skipulagsfræðum

     

  • Staða bókmenntakennslu í grunnskólum Fjarðabyggðar og þeir straumar sem þar má greina, Jón Svanur Jóhannsson, Háskóli Íslands, menntavísindasvið 

     

  • Ferðalangar í eigin heimabyggð – Verkefnasafn úr sögu Reyðarfjarðar.  Kristbjörg Sunna Reynisdóttir, Háskóli Íslands – menntavísindasvið

     

  • Nytjaskógrækt sem búgrein í landbúnaði á Austurlandi.  Sigurjón Andri Guðmundsson, Háskólinn á Bifröst – Viðskiptafræði (BSc)

     

 

Við óskum styrkþegunum til hamingju og óskum þeim góðs gengis við að klára ritgerðirnar en þær  verða birtar á vef sjóðsins í samráði við höfunda.


Til Baka
| Meira