Hlutverk Bókasafna í Fjarðabyggð er að vera vettvangur fyrir félags- og menningarlíf íbúa sveitarfélagsins þar sem almenningur getur notið bókmennta, menningar og lista. Söfnin starfa samkvæmt lögum um almenningsbókasöfn. Auk útlána á bókum og tímaritum lána söfnin út hljóðbækur.
Bókasöfnin eru einnig þjónustugátt fyrir bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar. Á opnunartíma safnanna er tekið við umsóknum um þjónustu sveitarfélagsins. Hægt er að sækja sér eyðublöð og hægt að fylla þau út á tölvu til útprentunar. Bókasöfnin taka á móti umsóknum og koma þeim til skila á bæjarskrifstofuna á Reyðarfirði.
Jafnframt er aðgangur að tölvu og aðstoð og ráðgjöf um hvernig nálgast má upplýsingar um starfsemi sveitarfélagsins á heimasíðunni. Starfsmenn bókasafnanna veita aðstoð við að finna rétt eyðublöð og að benda á hvar hægt sé að leita sér frekari aðstoðar eða upplýsinga.
Á söfnunum eru einnig tölvur ætlaðar lánþegum, ýmist til að skoða marg-miðlunardiska, sækja upplýsingar á Internetið eða til ritvinnslu. Aðstoð er veitt við heimildaleit og boðið er upp á lesaðstöðu. Víðtækt samstarf er við grunnskólana.
Bókasöfnin starfa undir Safnastofnun Fjarðabyggðar og Menningar- íþrótta- og ferðamálanefnd.
Gjaldskrá bókasafna
Bókasafnið á Eskifirði, Lambeyrarbraut 16, 735 Fjarðabyggð,
sími 476 1586. bokesk@fjardabyggd.is
Bókasafnið í Neskaupstað, Skólaveg 9 740 Fjarðabyggð,
sími 477 1521. boknes@fjardabyggd.is
Bókasafnið á Reyðarfirði, Búðareyri 25 730 Fjarðabyggð,
sími: 474 1366. bokrey@fjardabyggd.is
Bókasafnið á Fáskrúðsfirði, Hlíðargötu 46, 750 Fjarðabyggð,
sími 475 9016. bokfas@fjardabyggd.is
Bókasafnið á Stöðvarfirði, Skólabraut 20, 755 Fjarðabyggð,
sími 475 9017. boksto@fjardabyggd.is
Bókasöfnin eru opin sem hér segir
|
|
Mánudaga
|
Þriðjudaga
|
Miðvikudaga
|
Fimmtudaga
|
Föstudaga
|
|
Norðfjörður
|
14 - 19
|
14 - 17
|
14 - 17
|
14 - 17
|
|
|
Eskifjörður
|
14 - 17
|
14 - 17
|
14 - 19
|
14 - 17
|
|
|
Reyðarfjörður
|
14 - 17
|
14 - 17
|
14 - 17
|
14 - 19
|
|
|
Fáskrúðsfjörður
|
14 - 19
|
|
14 – 17
|
|
14 - 17
|
|
Stöðvarfjörður
|
|
14 - 19
|
|
14 - 17
|
|
Sjá nánar um þjónustu bókasafna.