Trúður á Frönskum dögum 2008
 Hernámsdagurinn 1. júlí
 

Páskafjör

er menningar- og útivistarhátíð sem er haldin víða um Austurland. Hæst ber glæsilega dagskrá í Skíðamiðstöðinni í Oddsskarði, páskaeggjaleit og spennandi gönguferðir.

 

Sjómannadagurinn

er haldinn hátíðlegur fyrstu helgina í júní á Fáskrúðsfirði, Eskifirði og Norðfirði.   Hátíðarhöldin eru fyrsta laugardag í júní á Fáskrúðsfirði og frá fimmtudegi til sunnudags á Eskifirði og Norðfirði.
 

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní

Skrúðganga og skemmtidagskrá.

 

Hernámsdagurinn 1. júlí

Dagsins var fyrst minnst árið 2008 en þá er minnst hernámsins árið 1940 þegar breskir hermenn stigu  á landi í Reyðarfirði.  Dagskrá er við Íslensa Stríðsárasafnið og víðar. Tilboð á Fish & Chips á veitingastöðum.  Hermenn og hertrukkar á ferðinni.

 

Rokkhátíðin Eistnaflug

er haldin aðra helgina í júlí á Norðfirði. Hart rokk í Egilsbúð - alla helgina.

 

Maður er manns gaman

Á Stöðvarfirði er sjálfbæra bæjarhátíðin Maður er manns gaman haldin um þriðju helgina í júlí. 

 

Franskir dagar

eru á Fáskrúðsfirði fjórðu helgina í júlí þ.e. helgina fyrir verslunarmannahelgi. Menningarveisla fyrir alla fjölskylduna með frönsku ívafi.

 

Neistaflug og  Barðsneshlaup  

eru um verslunarmannahelgina á Norðfirði, fyrstu helgina í ágúst.

 

Dagar myrkurs

Menningarhátíð sem haldin er í  nóvember, en þá er boðið upp á fjölbreytta dagskrá (viðburðadagatal) sem tengist ljósi og myrkri. 


 

 Sjá nánar um dagskrá hátíðanna á heimasíðum og viðburðadagatali.