Austfirsku alparnir
Oddsskarð eða austfirsku alparnir eins og svæðið er oft nefnt, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, er eitt skemmtilegasta skíðasvæði landsins. Þar er lyfta sem hefst í 513 metra hæð og þegar upp á topp er komið, í 840 metra hæð yfir sjávarmáli, blasir við ægifagurt útsýni yfir Reyðarfjörðinn.
Einnig barnalyfta, góð aðstaða fyrir brettafólk og skíðaskáli með veitingaaðstöðu. Mikið er um að vera í Oddsskarði um páskana þegar þar er haldið Páskafjör, þá er mikið um að vera á svæðinu og viðburðir af ýmsu tagi. .
Á skíðasvæðinu eru 3 toglyftur, 1 lyfta sem er um 750 metra löng, þegar henni sleppir tekur við Topplyftan sem er um 550 metra löng. Ferðin í lyftunum byrjar í 513 metrum yfir sjávarmáli og þegar komið er upp á topp er skíðafólkið komið í 840 metra hæð yfir sjávarmáli. 250 metra toglyfta er í barnabrekku sem kallast Sólskinsbrekka.
Upplýsingar um daglegan opnunartíma fást í símsvara 878 1474 og á heimasíðu Oddskarðs
Gjaldskrá Oddsskarðs
Svæðið er jafnframt æfinga- og keppnisvettvangur íþróttafélaganna í Fjarðabyggð; Austra á Eskifirði, Vals á Reyðarfirði og Þróttar í Neskaupstað.
Forstöðumaður Skíðamiðstöðvarinnar er Dagfinnur Ómarsson. Sími 476-1465. Undir hans stjórn starfa að jafnaði 5 starfsmenn á svæðinu þegar það er opið. Þeir sem vilja leigja skálann snúi sér til Dagfinns skíðasvæðisins í síma 899 7858.
Saga Oddsskarðs
Áður en Skíðamiðstöðin í Oddsskarði var byggð upp hafði Skíðadeild Þróttar í Neskaupstað yfir að ráða gömlum skíðaskála í Oddsdal en þar var einungis ævaforn togbraut og skálinn fyrst og fremst notaður þegar keppni á skíðum fór fram eða í nemendaferðum á vegum grunnskólans og gagnfræðaskólans í Neskaupstað.
Skíðaiðkun Norðfirðinga fór að mestu fram í Kúahjöllum ofan byggðar í Neskaupstað en þar var togbraut.
Eskfirðingar voru einnig með togbraut nokkru neðar en núverandi skíðasvæði í Oddsskarði og var sú braut töluvert notuð á tímabili.
Reyðfirðingar höfðu ekki eigið skíðasvæði fyrr en með tilkomu Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði en með tilkomu hennar tóku Norðfirðingar, Eskfirðingar og Reyðfirðingar sig saman um að koma upp góðu skíðasvæði fyrir alla íbúa svæðisins.
Gunnar Ólafsson, fyrrum skólastjóri Nesskóla, átti hugmynd að staðsetningu skíðasvæðisins þar sem það er í dag.
Fyrsta lyftan var tekin í notkun 1980. Árið 1990 var önnur lyfta tekin í notkun, lyfta sem tekur við þar sem lyftu frá 1980 sleppir.
Þar með var komin samfelld 1.257,9 metra lyfta, þ.e. ferð með lyftunni byrjar í 513 metrum yfir sjávarmáli og þegar komið er upp á topp er viðkomandi kominn í 840 metra hæð yfir sjávarmáli. 1986 var tekin í notkun toglyfta í barnabrekku. Ný barnalyfta var tekin í notkun 1999 og leysti hún af hólmi gömlu toglyftuna. Barnabrekkan kallast nú Sólskinsbrekka enda nýtur sólar þar fyrst á morgnana.
Skíðaskálinn var byggður árið 1986 af Róbert Jörgensen eftir teikningu Magnúsar Gunnarssonar. Í skálanum er veitingasala og hægt er að fá gistingu í svefnpokaplássi fyrir allt að 35 manns í einu.
Troðari var fyrst notaður á svæðinu 1988 og svæðið var flóðlýst 1994. Skíðasvæðið er viðurkennt af FÍS, alþjóða skíðasambandinu, og leyfilegt er að halda alþjóðleg skíðamót á svæðinu.
Til Baka
-
No article found with the ID:
Til Baka