Sjóminjasafn Austurlands
 Steinasafn Sörens og Sigurborgar
 Steinasafn Petru
 Íslenska stríðasárasafnið
 Fransmenn á Íslandi á Fáskrúðsfirði
 Safnahúsið á Norðfirði
 

Sjóminjasafn Austurlands

Strandgötu 39b, Eskifirði, sími 470 9063/476 1605, sofn@fjardabyggd.is  Opið 13:00 - 17:00 alla daga vikunnar, frá 1. júní til 31. ágúst eða eftir samkomulagi. Í safninu eru munir sem tilheyra sjósókn og vinnslu sjávarafla.  Einnig eru þar verslunarminjar og hlutir sem tilheyra ýmsum greinum iðnaðar og lækninga frá fyrri tíð. Sjóminjasafnið er í gömlu verslunarhúsi, Gömlu búð, sem var byggt 1816.

 

Steinasafn Sörens og Sigurborgar

Lambeyrarbraut 5, Eskifirði, sími 476 1177.  Safnið er einkasafn og ekki er opið á formlegum tíma en allir eru velkomnir þegar Sigurborg er heima. Einnig er hægt að hringja á undan sér í síma 476 1177.  Safnið var stofnað árið 1976. Það státar af fjölda tegunda íslenskra steina en einnig er þar að finna erlendar tegundir. Hjónin Sigurborg og Sören söfnuðu, söguðu og slípuðu megnið af steinunum. Safnið er á neðri hæð á heimili Sigurborgar.

 

Steinasafn Petru

Fjarðabraut 21, Stöðvarfirði sími 475 8834 og 866 3668.   Opið 09:00 - 18:00, alla daga vikunnar frá maí til september.  Steinasafn Petru er stórt og glæsilegt steinasafn í einkaeigu.  Stofnandi þess, Petra Sveinsdóttir, safnaði  steinum í fjöllunum við Stöðvarfjörð frá barnæsku og í áranna rás hefur bæst við safnið.  Nú fyllir safnið og minjagripasalan húsið hennar Petru og garðinn sem er orðinn hluti af safninu. Safnið er einn vinsælasti áfangastaður ferðamanna á Austurlandi.

 

Íslenska stríðasárasafnið

Spítalakamp v/Hæðargerði, Reyðarfirði sími 470 9063, sofn@fjardabyggd.is .  Opið 13:00 - 17:00 alla daga vikunnar, frá júní til 31. ágúst eða eftir samkomulagi. Á Íslenska stríðsárasafninu er hægt að ferðast aftur til daga seinni heimsstyrjaldarinnar. Safnið veitir okkur innsýn í lífið á stríðsárunum og áhrif hersetunnar á íslensku þjóðina.

 

Fransmenn á Íslandi

Búðavegi 8, Fáskrúðsfirði, sími  892 8929.  sofn@fjardabyggd.is.  Opið 10:00-18:00 alla daga vikunnar á sumrin. Í safninu er saga franskra skútusjómanna á Íslandi rakin á fjölbreyttan hátt. Blómatími þeirra hér við land var frá fyrri hluta 19. aldar til 1914. Á þeim árum voru hér allt að 5.000 manns að veiðum í einu. Á safninu er notalegt kaffihús og upplýsingamiðstöð. 

 

Safnahúsið Norðfirði

Egilsbraut 2, Norðfirði, sími 470 9063, sofn@fjardabyggd.is   Opið 13:00 - 17:00 alla daga vikunnar, frá 1. júní til 31. ágúst eða eftir samkomulagi.  Húsið sem á sér merka sögu hefur að geyma þrjú glæsileg söfn undir sama þaki.

 

Myndlistarsafn Tryggva Ólafssonar

Tryggvi Ólafsson er fæddur árið 1940 á Norðfirði. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1960-61 og við Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn 1961-66. Tryggvi er meðal þekktustu núlifandi myndlistarmanna Íslendinga.

 

Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar

Á safninu eru áhugaverðir hlutir sem tengjast sjávarútvegi, bátasmíði, járn- og eldsmíði og einnig gömlum atvinnuháttum á Íslandi. Þarna er að finna eftirlíkingu af eldsmiðju föður Jósafats þar sem Jósafat lærði og byrjaði starfsferil sinn.

 

Náttúrugripasafnið í Neskaupstað

Safnið var stofnað 1965.  Fyrsta sýning þess var opnuð sumarið 1970 í Gagnfræðaskólanum í Neskaupstað,  en árið 1971 var sýningarsalur safnsins opnaður að Mýrargötu 37.  Var Hjörleifur Guttormsson fyrsti forstöðumaður safnsins og aðalhvatamaður þess.  Árið 1989 flutti safnið að Miðstræti 1,  þar sem það var til húsa til ársins 2006, en þá var það flutt í Safnahúsið í Neskaupstað, Egilsbraut 2, Neskaupstað.

Safnið hefur að geyma flesta íslenska fugla auk fjölda flækinga ásamt ágætu fiskasafni með ýmsum sjaldséðum fiskum. Einnig eru í safninu ýmsir gripir af sjávarbotni, þar á meðal mjög gott safn skeldýra. Villtu íslensku spendýrin eiga sína fulltrúa á safninu og þar er einnig mjög gott steinasafn. Þá varðveitir safnið austfirskar plöntuvísindasafn og skordýrasafn.