Náttúrugripasafnið í Neskaupstað var stofnað 1965. Upphafsmaður að stofnun safnsins var Bjarni Þórðarson þáverandi bæjarstjóri. Hjörleifur Guttormsson líffræðingur var fyrsti forstöðumaður safnsins og vann að uppsetningu þess. Fyrsta sýning var opnuð í Gagnfræðaskólanum í Neskaupstað sumarið 1970.

Sýning safnsins var síðan opnuð í leiguhúsnæði að Mýrargötu 37 sumarið 1971. Systkinin Jóhann og Sigrún Sigmundarbörn gáfu safninu íbúðarhús sitt að Miðstræti 1 árið 1987 en áður hafði Jóhann gefið safninu steinasafn sitt sem hefur að geyma m.a. mikið af slípuðu efni. Safnið flutti í eigið húsnæði að Miðstræti 1 vorið 1989.

Náttúrugripasafnið hefur unnið að umhverfisrannsóknum m.a. á hálendinu NA Vatnajökuls vegna virkjanaframkvæmda og annast nú eftirlit og ráðgjöf vegna mannvirkjagerðar fyrir Náttúruvernd ríkisins.

Í mars 2002 skrifaði Fjarðabyggð undir samning við Náttúrustofu Austurlands þess efnis að Náttúrustofa tekur við rekstri safnsins fyrir sveitarfélagið. Gildir samningur þessi frá áramótum 2001/2002 og kemur hann til með að styrkja báðar þessar stofnanir mjög í hlutverki sínu.

Safnið hefur að geyma flesta íslenska fugla auk fjölda flækinga ásamt ágætu fiskasafni með ýmsum sjaldséðum fiskum. Einnig eru í safninu ýmsir gripir af sjávarbotni, þar á meðal mjög gott safn skeldýra. Viltu íslensku spendýrin eiga sína fulltrúa á safninu og þar er einnig mjög gott steinasafn. Þá varðveitir safnið austfirskt plöntuvísindasafn og skordýrasafn.

Náttúrugripasafnið í Neskaupstað, Egilsbraut 2, 740 Neskaupstað. Sími: 477 1454 og 470 9063.
Fax: 470 9001. Netfang: safn@fjardabyggd.is og petur.sorensson@fjardabyggd.is .
Opið frá 13:00 - 17:00, alla daga, frá 1. júní til 31. ágúst. Á veturna eftir samkomulagi við forstöðumann sími: 477 1454 - 470 9063 eða 860 4726.