|
A.
|
Gengið er inn i húsið, þar sem krambúðin var, en hún var endurgerð á sama hátt og talið var, að hún hafi verið upprunalega. Þar var komið fyrir hlutum, sem eru horfnir úr verslunum á okkar dögum og vitað er, að sumir þeirra eru upphaflegir. |
|
B.
|
Inni af krambúðinni á neðri hæðinni var pakkhús og í þeim hluta eru núna sjóminjar. |
|
1.
|
Hlutir frá upphafi síldveiða hérlendis, líkön af svokallaðri landnót og stauranót eða botnneti, líkan af síldarsjóhúsi, sem Norðmenn byggðu upp úr 1880 víða í sjávarplássum á Austfjörðum. Einnig eru sýnd ýmiss konar tól og tæki, sem voru notuð við síldveiðar og söltun. |
|
2.
|
Líkan af hvalstöð, sem var í Hellisfirði árin 1904-13. Þá voru fimm hvalstöðvar á Austfjörðum. einnig eru sýndar ljósmyndir og ýmsir hlutir frá þessum vettvangi. Á gólfi til hliðar við stigann er lítil hvalabyssa, sem var notuð við hrefnuveiðar. Byssan kom frá Vestfjörðum og var um tíma í eigu Hrefnu-Gvendar. |
|
3.
|
Veiðarfæri til veiða á þorski og öðrum tegundum. Þetta eru svokölluð handfæri og sýnd er þróun þeirra til nútímans. Hér eru einnig tæki til að snúa saman tauma á fiskilínur og til að gera svera kaðla úr notuðum og slitnum strengjum. Þá mátti nota í stjórafæri, landfestar o.þ.h. |
|
4.
|
Líkön af færeyskum árabát og Ásubergsskipinu, sem var grafið úr jörð í Noregi árið 1904 og mun vera frá víkingatímanum. Á veggjum eru myndir frá síldveiðum o.fl. varðandi sjósókn, einnig línurit yfir síldveiðar við Ísland á árunum 1870 - 1980. |
|
5.
|
Myndir og aðrar heimildir báta og skipa á Eskifirði. Myndir af strandferðaskipum Skipaútgerðar ríkisins, skipum Landhelgisgæslunnar og flutningaskipum Sambandsins og Eimskipafélagsins. |
|
6.
|
Myndir og upplýsingar um nokkra skipstjórnarmenn, sem hafa átt heima á Eskifirði. Ýmsir hlutir varðandi netagerð o.fl. Fiskilína frá smábátaútgerð ásamt beitningaborði og línubjóði. |
|
7.
|
Hlutir, sem voru notaðir við stjórnun og siglingar skipa og báta, einnig nokkur nafnskilti af bátum frá Eskifirði o.fl. |
|
8.
|
Þrjú líkön af skipum á Eskifirði frá 1905, þegar fyrsti vélbáturinn kom í Reyðafjörð ot til ársins 1957. Einnig er sýnd þróun þorsksneta. |
|
9.
|
Veiðarfæri, baujur o.fl. frá vélbátaútgerð og hlutir frá saltfiskverkun fyrri ára ásamt ljósmyndum. |
|
10.
|
Hákarlaveiðar. Gagnvaður með 4 krókum ásamt kraka (stjóra) og bauju, sem var gerð úr kálfsskinnbelg. Líka hnífar o.fl. verkfæri, sem voru notuð við hákarlaskurð. Þarna eru líka hákarlafæri, sem voru notuð líkt og handfæri fyrir þorsk. |
|
11.
|
Á veggnum eru beykisáhöld, sem voru notuð við tunnusmíði og viðgerðir. Þetta var áður sérstök iðngrein og var lærður maður í slíku kallaður beykir. Á borðinu fyrir neðan og hillu þar undir eru verkfæri til skipasmíða og viðgerða. |
|
12.
|
Árabátur, tveggja manna far, frá 1916 og í honum ýmiss konar veiðitól, handfæri, skutull, kolastingur og haglabyssa. Margt annað tengt sjósókn er að sjá á neðri hæðinni. |
|
C.
|
Efri hæðin.
|
|
1.
|
Tæki til brjóstsykursgerðar, sem voru keypt til Tuliniusarverzlunar árið 1905. Þau voru síðar í eigu Jóns Þorsteinssonar bakara. |
|
2.
|
Skósmíðaáhöld frá ýmsum mönnum, sem unnu við skósmíðar á Eskifirði meðan sú iðngrein var stunduð á staðnum. |
|
3.
|
Járnsmíðaáhöld eins og þau tíðkuðust hjá einstaklingum, sem fengust við járnsmíðar. Flestir munir eru frá Kristjáni Jónssyni, sem var útgerðarmaður og átti litla smiðju, þar sem hann vann fyrir útgerð sína og samborgara. einnig eru þar nokkrir hlutir frá Vélaverkstæði Eskifjarðar, sem Friðbjörn Hólm stofnaði árið 1921 og rak til 1928. |
|
4.
|
Búnaður til framleiðslu á steinsteypurörum og steypusteinum til húsbygginga. Voru í eigu Lúthers Guðnasonar, sem rak þessa starfsemi frá 1930 til 1956. |
|
5.
|
Trésmíðaáhöld og hefilbekkur úr eigu Guðna Jónssonar trésmíðameistara, sem starfaði við sína iðn á Eskifirði frá 1908 til 1970. Einnig verkfæri frá Jóni Halldórssyni Snædal og rennibekkur o.fl. frá Svínaskála og voru í eigu Jónasar Símonarsonar bónda og útgerðarmanns þar. |
|
6.
|
Hlutir frá heilsugæslu Eskifjarðar. Handlækningatæki voru í eigu Einars Ástráðssonar héraðslæknis 1931 - 1956. |
|
7.
|
Tannlæknatæki frá Baldri Óla Jónssyni, sem hóf tannlækningar á Eskifirði árið 1939 og starfaði fram yfir 1960. |
|
8.
|
Hlutir frá ljósmyndasmiðum, sem störfuðu á Eskifirði. |
|
9.
|
Tóvinnutæki, spunavélar tvær, rokkur, prjónavélar og gamall vefstóll. |
|
10.
|
Ýmiss konar heimilistæki frá fyrri tíma. |