Tónskóli Neskaupstaðar

Skólinn var stofnaður 3. mars 1967. Upphaf tónlistarkennslu í Neskaupstað má rekja til ársins 1955 en þann 12. september það ár var haldinn stofnfundur Tónlistarfélags í Neskaupstað. Tilgangur félagsins var að efla tónlistarlíf í bænum og stofna og reka tónlistarskóla. Fyrsti formaður félagsins var Magnús Guðmundsson. Í framhaldi af því hófst svo kennsla í Tónlistarskóla Neskaupstaðar 1. október 1956. Starfsemin var lögð niður 1964 en var endurvakin um þremur árum síðar með stofnun Tónskólans.

Húsnæðismál skólans voru lengi vel í ólestri og var kennt víða um bæinn í mörg ár, m.a. á heimilum kennara, í Tónabæ og gömlu kennarastofunni í Nesskóla.  Árið 1977 flyst Tónskólinn í kjallara Nesskóla og er þá í fyrsta sinn allur undir sama þaki. Þá má segja að bylting  hafi orðið, því aðsókn að skólanum jókst til mikilla muna og hefur haldist æ síðan. Árið 1987 flyst skólinn í húsnæði að Nesgötu 14 en er í dag í húsnæði grunnskólans. Í dag starfa 5 kennarar við skólann og nemendur eru að jafnaði um 110 talsins. Kennt er á öll helstu hljóðfæri.

Tónskólastjóri Tónskóla Neskaupstaðar er Ágúst Ármann Þorláksson, Skólavegi 9, 740 Neskaupstað, sími 477 1377. tonnes@fjardabyggd.is  - Umsókn um námsvist 

 


 

Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar

var upphaflega samstarfsverkefni Reyðarfjarðarhrepps og Eski-fjarðakaupstaðar. Við skólann starfa sex kennarar, fjórir í fullu starfi og tveir stundakennarar.

Skólinn hefur vaxið og dafnað á undanförnum árum, bæði hvað varðar námsgreinar í boði og fjölda nemanda. Aðaláhersla er lögð á hljóðfæra- og söngnám ásamt viðeigandi kennslu í tónfræði.

Yfir 140 nemendur stunda nám við skólann að jafnaði, frá 5 ára aldri. Kennt er á flest öll blásturs-, strengja- og rafmagnshljóðfæri, auk píanó- og söngkennslu.  Nemendur skólans taka reglulega þátt í landsmót strengja- og lúðrasveita

Tónskólastjóri Tónskóla Eskifjarðar og Reyðarfjarðar er Gillian Haworth, Skólinn er með aðstöðu í Grunnskóla Reyðarfjarðar, Heiðarvegi 14a, 730, sími 474-1298 og á Strandgötu 65, 735, sími 476-1340. toner@fjardabyggd.is  - Umsókn um skólavist



 

Tónlistarskóli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar.

Skólinn hét áður Tónlistarskóli Austurbyggðar en hann varð til eftir sameiningu Búðahrepps og Stöðvarhrepps. Skólinn var stofnaður haustið 2004 og stunda rúmlega 80 nemendur nám við hann á öllum aldri en þó eru langflestir nemendur á grunnskólaaldri. Boðið er upp á nám á öll helstu hljóðfæri og einsöng.  Einnig er mikil áhersla lögð á tónfræðagreinar Þó er ekki kennt á strengjahljóðfæri utan gítar. Tveir kennarar kenna við skólann auk skólastjóra en stefnt er á þeir verði þrír. Skólastjóri Tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar er Valdimar Másson, sími 891 6035.

Skólinn er til húsa í skólamiðstöðinni, 750 Fáskrúðsfirði, sími 475 9035 og í grunnskólanum að Skólabraut, 755 Stöðavarfirði, sími 475 9036. tonfast@fjardabyggd.is .  Heimasíða skólans er www.tonfast.comUmsókn um skólavist




Ábendingar og fyrirspurnir


Kortasjá

Gjaldskrár