Golfvöllur Eskifirði
 Nýr golfvöllur 730
 
 

 

Grænanesvöllur á Norðfirði 

 

Byggingarár 1965
Holur 9
Par 70



Golfvöllur Golfklúbbs Norðfjarðar, Grænanesvöllur, er inn af botni fjarðarins.  Skemmtilegur og vel hirtur völlur í fallegu umhverfi. Ekið að vellinum eftir afleggjara til móts við býlið Miðbæ. Daggjald á vellinum er kr. 2.500. Sími í golfskála  477 1165.   Sjá einnig heimasíðu klúbbsins

 


Byggðarholtsvöllur á Eskifirði

 

Byggingarár 1976
Holur 9
Par 66



Golfvöllur Golfklúbbs Eskifjarðar, Byggðarholtsvöllur,  er sunnan við Eskifjarðará, innan byggðarinnar. Völlurinn er í fjölbreyttu umhverfi og skemmtilegur að spila.  Daggjald á vellinum er kr. 2.000 og ókeypis fyrir börn yngri en 15 ára.  Völlurinn er að sjálfsögðu opinn allt sumarið og eins lengi og tíð leyfir á haustin.  Allar upplýsingar eru veittar í golfskála félagsins á daginn. Sjá einnig heimasíðu klúbbsins

 


  

Golfvöllurinn Kollur á Reyðarfirði

Byggingarár 2009
Holur 9
Par 70

 

Golfvöllur Golfklúbbs Fjarðabyggðar  er  í hlíðinni rétt innan við bæinn á Reyðarfirði  í fallegu umhverfi og þægilegur yfirferðar.    Golfvöllurinn er nýr og því ennþá verið að gera á honum smá lagfæringar.  Við Golfskálann er púttsvæði.  Daggjald er 2.000,-

Sjá einnig heimasíðu Golfklúbbs Fjarðabyggðar www.golf.is   

Einnig eru æfingasvæði fyrir golfara á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.