Á HólmatindiFjarðabyggð er draumastaður fyrir útivist og hefur svæðið að geyma eitt mest spennandi göngusvæði Íslands Gerpissvæðið milli Norðfjarðar og Reyðarfjarðar sem einnig er austasti hluti landsins. Fyrir þá sem vilja áskorun þá er hægt að vinna sér inn titilinn Fjallagarpur Fjarðabyggðar með því að ganga á fjöllinn fimm í Fjarðabyggð sem ferðafélag svæðisins hefur valið, Kistufell 1239 m, Goðaborg 1132 m, Svartafjall 1021 m, Hólmaháls 985 m, Hádegisfjall 809 m. Þar er gengið upp með stimpilkort og eftst er svo stimplað. Eftir fimm fjöll og fimm stimpla hefur viðkomandi hlotið titilinn, kemst á vefsíðu félagsins og fær einnig verðlaunagrip að launum. Þetta er svo sannarlega erfiðisins virði þar sem á leiðinni má njóta kyrrðarinnar, skoða fjölbreytt gróðurfar og fylgjast með fugla og dýralífi. Á haustinn er hægt að leggast í brekkurnar, tína

aðalbláber og alltaf hægt að fá sér svalandi hressingu úr næstu lækjarsprænu. Ganga í fallegu umhverfi er góð líkamsrækt fyrir alla og í Fjarðabyggð er hægt að finna gönguleiðir við allra hæfi.

Ferðafélögin hafa verið ötult við það á síðustu árum að merkja gönguleiðir á Austfjörðum. Einnig hefur verið út gönguleiðakort af svæðinu frá Seyðifirði og til Reyðarfjarðar og annað kort yfir svæðið frá Reyðarfirði yfir að Stöðvarfirði. Fjölmargar leiðir hafa verið stikaðar m.a. frá Norðfirði og yfir í Mjóafjörð um Miðstrandarskarð og frá Vöðlavík og yfir í Sandvík um Gerpisskarð. Leiðin frá Mjóafirði yfir í Norðfjörð er hluti af samfelldri gönguleið sem stikuð er frá Borgarfirði eystri yfir í Skriðdal og gönguleiðin frá Vöðlavík yfir í Sandvík er hluti af gönguleiðakerfi á Gerpissvæðinu sem nú hefur nánast allt verið stikað.

Gönguvikan Á fætur í Fjarðabyggð er haldin Gengið á Harðskafasíðustu vikuna í júní og þar er í boði fjölbreyttar göngur við allra hæfi, kvöldvökur, náttúruskóli fyrir börnin og margt fleira.

Ferðafélögin gefa út dagskrá fyrir hvert ár þar sem má sjá upplýsingar um skipulagðar gönguferðir.

Tenglar:

Ferðafélag Fjarðamanna, www.simnet.is/ffau , skipulagðar ferðir.

Göngufélag Suðurfjarða, fjallganga@hotmail.com, skipulagðar ferðir.

Ferðaþjónustan Mjóeyri, www.mjoeyri.is, gönguferðir með leiðsögn.