Í Fjarðabyggð er blómlegt menningar- og listalíf. Í Eskifjarðarkirkju er Kirkju- og menningarmiðstöð Fjarðabyggðar þar sem áhersla er lögð á tónlist. Hljómburður er einstakur og hönnun öll miðar að því að skpa sjón- og hljóðræn áhrif milli flytjenda og njótenda. Þar er fjöldi listviðburða allt árið um kring.
Norðfjörður er þekktur fyrir öflugt tónlistarlíf og er þar Brján, Blús-, rokk- og djassklúbburinn á Nesi, fremstur í flokki. Klúbburinn stendur fyrir viðburðum árið um kring en er hvað þekktastur fyrir rokkveislurnar semhaldnar eru á hverju hausti. Blúskjallarinn er húsnæði klúbbsins og góður tónleikastaður, þar eru haldnir tónleikar allt árið um kring.
Í Fjarðabyggð er að finna fagurt handverk og listiðnað ýmiss konar. Í kaffihúsinu Nesbæ á Norðfirði er mánaðalega ný sýning eftir ýmsa listamenn. Gallerí Thea er í Norðjfararsveit en Thea sérhæfir sig í leirlist og eru leirhestarnir hennar löngu orðnir frægir. Hægt er að kaupa handverk frá Verkstæði Kötu í Sólskógum á Reyðarfirði, bæði muni unna úr leir og gleri. Eitt fullkomnasta grafíksetur landsins er á Stöðvarfirði, rekið af hjónunum Ríkharði Valtingojer og Sólrúnu Friðriksdóttur. Þar er einnig Gallerý Snærós. Á Steinasafnið Petru á Stöðvarfirði er hægt að kaupa minjagripi unna úr steinum.
Nánar um menningu og tómstundir